Frí heimsending á pöntunum yfir 20.000 kr.

Skilmálar

Almennar upplýsingar: Netverslunin Kyrrland er rekin af Báru Brandsdóttur (Grænahlíð 15, kt. 261078-4069, s. 615-7839, vsk númer 126773, info@kyrrland.is).
Pantanir: Kyrrland áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, varan er ekki til á lager og vegna mynda ruglings. Við áskilum okkur einnig rétts til að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 
Verð: 24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar.
Greiðslur: Hægt er að greiða vöru með Rapyd payment, Netgíró, Pei og með millifærslu (reikningsnr. 0123-26-200230, kt. 261078-4069). Öll vinnsla greiðslukorta-upplýsinga fer fram í öruggri greiðslusíðu Valitor. 
Afhending vöru og sendingarkostnaður: Heimsending: Afgreiðslutími pantana er almennt 1-7 virkir dagar (á álagstímum og þegar sumarfrí standa yfir getur afgreiðslutími lengst örlítið). Heimsending kostar 1250 kr (frí heimsending er á pöntunun yfir 20.000 kr ). Sé vara ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða fellir niður/endurgreiðir pöntun sé þess krafist. Heimsendingar eru almennt sendar með Dropp eða Íslandspósti. Af öllum pöntunum dreift af Dropp eða Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp/Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Kyrrland ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Kyrrlandi til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Heimsendingar utan höfuðborgarsvæðisins eru almennt sendar á næsta afhendingarstað Dropp/pósthús.   
Í boði er að sækja pöntunina. Sótt í Grænuhlíð 15 (105 Rvk.), við sendum tölvupóst/sms um leið og pöntun er tilbúin (almennt 1-7 virkir dagar, á álagstímum getur afgreiðslutími lengst örlítið
Að skipta og skila vöru: Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. (Ef vara er keypt 11. nóv 2023 eða síðar á árinu er skilafrestur til 10. janúar 2024.) Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Gölluð vara: Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup. 
Afritun: Ekki má í neinum tilfellum afrita efni af vefsíðunni.
Vefkökur (e. cookies): Vefurinn notar vefkökur.
Plaköt: Litir geta verið örlítið öðruvísi á veggspjöldunum sjálfum en á skjánum þar sem litir eru mismunandi eftir tölvuskjám/símaskjám.
Trúnaður (Öryggisskilmálar): Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing: Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

 

Sale

Unavailable

Sold Out